Opnun tilboða

Hringvegur (1) Hveragerði – Biskupstungnabraut, hönnun

26.7.2016

Tilboð opnuð á síðari opnunarfundi þar sem lesin voruupp nöfn hæfra bjóðenda úr hæfisvali og tilboðsupphæð af tilboðs­eyðublöðum. For- og verkhönnun fyrir breikkun Hringvegar (1), frá  Kambarótum að vegamótum Hringvegar og Biskupstungnabrautar, um 12 km.  Á vegkaflanum skal hanna átta steyptar brýr og undirgöng, fimm bárustálsundirgöng, þar af ein ætluð til aksturs. Að lokum skal hanna tvenn tvöföld hringtorg, tvenn hliðfærð T-vegamót og hliðarvegi, göngu- og hjólreiðastíga, samtals um 9 km.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Forhönnun skal lokið fyrir 9. janúar 2017

Verkhönnun og skilamati skal lokið fyrir 30. mars 2018.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
VSÓ ráðgjöf ehf., Reykjavík 243.341.692 131,5 161.462
Áætlaður verktakakostnaður 185.100.000 100,0 103.220
Verkís hf., Reykjavík 156.147.196 84,4 74.268
Hnit hf. verkfræðistofa, Reykjavík 118.798.320 64,2 36.919
Efla hf., Reykjavík 89.726.959 48,5 7.847
Mannvit verkfræðistofa, Reykjavík 81.879.553 44,2 0