Opnun tilboða

Hringvegur (1) Hveragerði – Biskupstungnabraut, hönnun

20.7.2016

Fyrri opnunarfundur 19. júlí 2016. For- og verkhönnun fyrir breikkun Hringvegar (1), frá  Kambarótum að vegamótum Hringvegar og Biskupstungnabrautar, um 12 km.  Á vegkaflanum skal hanna átta steyptar brýr og undirgöng, fimm bárustálsundirgöng, þar af ein ætluð til aksturs. Að lokum skal hanna tvenn tvöföld hringtorg, tvenn hliðfærð T-vegamót og hliðarvegi, göngu- og hjólreiðastíga, samtals um 9 km.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Á fundinum var lesið upp hverjir skiluðu inn tilboðum en á seinni opnunarfundi þriðjudaginn 26. júlí 2016 klukkan 14:15 verða lesin upp nöfn hæfra bjóðenda úr hæfnisvali og tilboðsupphæð af tilboðs­eyðublöðum. 

Bjóðandi:

    Hnit, verkfræðistofa, Reykjavík

    Verkís hf., Reykjavík

    VSÓ ráðgjöf, Reykjavík

    Efla hf., Reykjavík

    Mannvit, verkfræðistofa, Reykjavík