Opnun tilboða

Hringvegur (1), Fossvellir-Lögbergsbrekka, eftirlit (EES)

13.7.2021

Vegagerðin bauð út eftirlit með útboðsverkinu Hringvegur (1), Fossvellir - Lögbergsbrekka. Verkið felur í sér tvöföldun Suðurlandsvegar á um 3,3 km kafla ásamt gerð hliðar- og tengivega og undirganga fyrir ríðandi umferð.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í byrjun árs 2022.

Tilboðum bar að skila fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí  2021. Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests:   

Mannvit, Kópavogi
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík

Föstudaginn 16. júlí 2021 verður tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.