Hringvegur (1), Biskupstungnabraut-Hveragerði: Ölfusvegur um Varmá
Opnun tilboða 7. desember 2021. Nýbygging vegkafla á Ölfusvegi og Sunnumörk í Hveragerði ásamt gerð nýrrar brúar á Varmá norðan Suðurlandsvegar.
Verkið felst í lagningu nýs vegar á u.þ.b. 780 m löngum kafla frá gatnamótum Sunnumerkur og Dalsbrúnar í Hveragerði að gatnamótum Ölfusvegar við Ölfusborgir austan Varmár ásamt byggingu nýrrar brúar yfir Varmá og reiðstígs undir brúna. Vegundirbygging Sunnumerkur; frá Dalsbrún og langleiðina að Varmá hefur að mestu leyti verið lögð út nú þegar.
Helstu magntölur eru:
Verkhluti 8.01 Vegagerð
- Fylling úr námum 9.000 m3
- Ræsalögn 50 m
- Styrktarlag 4.000 m3
- Burðarlag 1.600 m3
- Malbik 9.400 m2
- Vegrið, uppsetning 180 m
Verkhluti 8.02 Brú á Varmá
- Brúarvegrið 108 m
- Gröftur . 1.250 m3
- Fylling við steypt mannvirki 1.700 m3
- Mótafletir 1.450 m2
- Steypustyrktarstál 118 tonn
- Spennt járnalögn 18 tonn
- Steinsteypa 700 m3
Verkinu skal að fullu lokið 12. september 2022.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Íslenskir aðalverktakar hf. Reykjavík | 562.954.423 | 128,5 | 101.354 |
Loftorka Reykjavík ehf., Garðabæ | 461.600.000 | 105,4 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 438.100.000 | 100,0 | -23.500 |