Opnun tilboða

Hringvegur (1) Biskupstungnabraut - Hveragerði, 2. áfangi, Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá – Eftirlit (EES útboð)

31.3.2020

Eftir lok tilboðsfrests, 24. mars. 2020, var fyrri opnun í eftirlit með breikkun Hringvegar milli Biskupstungnabrautar og Hveragerðis. 

Lengd útboðskaflans er 7,1 km. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og endurgerð núverandi Hringvegar að hluta, gerð nýrra vegamóta við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs við Biskupstungnabraut, nýbyggingu Ölfusvegar, breytingu Þórustaðavegar og Biskupstungnabrautar sem og gerð heimreiða. Hluti verksins er bygging fimm steyptra brúa og undirganga ásamt tveggja reiðganga úr stáli.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð. 

Síðari opnun var 31. mars 2020. Verðtilboð bjóðenda og hæfnismat var skv. eftirfarandi:

  Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr. Hæfnismat, stig
Áætlaður verktakakostnaður 104.160.000 100,0 20.392
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík 102.297.520 98,2 18.529 87
Verkís hf., Reykjavík 98.795.925 94,9 15.028 95
Efla hf., Reykjavík 96.308.189 92,5 12.540 90
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík 83.768.319 80,4 0 93