Opnun tilboða
Dýrafjarðargöng (60): Stjórnkerfi
Tilboð opnuð 7. maí 2019. Gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng. Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gerð stjórnkerfis í Dýrafjarðargöng en þau eru um 5,6 km löng, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Stjórnkerfið hefur það hlutverk að fylgjast með ástandi í göngunum, skrá það, stjórna loftræsingu og láta vita af öllum bilunum ef hættusástand skapast. Innifalið í verkinu er hönnun/smíði stjórn- og neyðarsímaskápa, iðntölvubúnaður, forritun búnaðarins samkvæmt verklýsingu, prófun búnaðarins og gerð handbóka um kerfið.
Helstu magntölur verksins eru:
- · Stjórnskápar 11 stk.
- · Neyðarsímaskápar 17 stk.
- · Neyðarsímaklefar 4 við tæknirými
- · Iðntölvubúnaður 28 stýrivélar og fjar I/O
- · Netbúnaður 29 stk.
- · IP neyðarsímar 28 stk.
- · PC tölvubúnaður 2 stk.
- · Forritun stjórnkerfis samkvæmt kröfum
- · Stýriteikningar fyrir stjórnskápa
- · Gerð handbóka um kerfið
Verki skal lokið að fullu 31. ágúst 2020
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 93.604.254 | 100,0 | 25.307 |
Rafal ehf. Hafnarfirði | 87.837.063 | 93,8 | 19.540 |
Lota ehf., Reykjavík | 86.406.755 | 92,3 | 18.109 |
Orkuvirki ehf., Reykjavík | 78.551.002 | 83,9 | 10.253 |
Rafmenn ehf., Akureyri | 74.654.771 | 79,8 | 6.357 |
Rýmd ehf., Reykjavík | 71.967.085 | 76,9 | 3.670 |
Rafskaut ehf., Ísafirði | 70.133.481 | 74,9 | 1.836 |
Rafeyri ehf., Akureyri | 68.297.560 | 73,0 | 0 |