Opnun tilboða

Arnarnesvegur (411), Rjúpnavegur - Breiðholtsbraut. Hönnun (EES)

13.4.2021

Fyrri opnunarfundur 13. apríl 2021. For- og verkhönnun Arnarnesvegar (411-07) milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.  Um er að ræða 3. áfanga Arnarnesvegar, um 1,9 km nýjan vegkafla milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Einnig skal hanna brú yfir Breiðholtsbraut fyrir bíla og gangandi og hjólandi, ljósastýrð vegamót við Breiðholtsbraut, hringtorg við Rjúpnaveg, hringtorg við Vatnsendahvarf, undirgöng undir nýjan Arnarnesveg, brú fyrir gangandi og hjólandi yfir nýjan Arnarnesveg, ásamt stígum fyrir hjólandi og gangandi meðfram Arnarnesvegi og inn í Elliðaárdal. Einnig er innifalin hönnun nýrrar brúar fyrir gangandi og hjólandi yfir Elliðaár við Dimmu. 
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.  Þriðjudaginn 20. apríl 2021 verður bjóðendum tilkynnt verðtilboð hæfra bjóðenda.

Eftirtaldir aðilar skiluðu inn tilboði innan tilboðsfrests:

EFLA hf., Reykjavík

Hnit, verkfræðistofa hf., Reykjavík

Verkís hf., Reykajvík

VSÓ Ráðgjöf ehf, Reykjavík