Aðkomuvegur að gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri
Opnun tilboða 12. maí 2020. Vegagerðin og Framkvæmdasýsla ríkisins óskuðu eftir tilboðum í gerð 0,5 km langs vegar að fyrirhugaðri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Kirkjubæjarklaustri, auk jarðvegsskipta fyrir bílaplan og afvötnun þess.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 11.700 m3
- Fyllingar 4.500 m3
- Styrktarlag 6.000 m3
- Burðarlag 200 m3
- Frágangur fláa 7.000 m2
- Lagnir 150 m
Verklok eru 15. ágúst 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Vörubifreiðastjórafélagið Mjölnir, Selfossi | 53.183.500 | 115,4 | 7.376 |
Áætlaður verktakakostnaður | 46.100.000 | 100,0 | 292 |
Framrás ehf., Vík | 45.808.000 | 99,4 | 0 |