Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2019-2020, blettanir með klæðingu

17.4.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í blettanir með klæðingu á Vestursvæði og Norðursvæði 2019-2020

Helstu magntölur fyrir árið 2019 eru:

  • Blettun á Vestursvæði með þjálbiki                                   172.240  m2
  • Blettun á Vestursvæði með bikþeytu                                   28.860  m2
  • Blettun á Norðursvæði með þjálbiki                                  150.260  m2

Samtals yfirlögn                                                               351.360  m2

Útboðsgögn eru afhent hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 17. apríl 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. maí 2019  og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.