Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2017 – 2018, blettanir með klæðingu

31.10.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í blettanir með klæðingu á Vestursvæði og Norðursvæði á áunum 2017 og 2018.

Helstu magntölur:

  • Blettun (k1) útlögn á Vestursvæði   184.000 m2 hvort ár
  • Blettun (k1) útlögn á Norðursvæði 149.800 m2 hvort ár

Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 31. október 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 22. nóvember 2016 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.