Auglýst útboð
Yfirlagnir á Vestursvæði 2019, klæðing
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Vestursvæði 2019
Helstu magntölur eru:
- - Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 307.562 m2
- - Hjólfarafylling með klæðingu 9.924 m2
- - Kýling klæðingar 140.014 m2
- - Flutningur steinefna 5.973 m3
- - Flutningur bindiefna 536 tonn
Útboðsgögnin verða afhent í móttöku Vegagerðarinnar Borgartúni 7 í Reykjavík og Borgarbraut 66 í Borgarnesi frá og með þriðjudeginum 2. apríl 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.