Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði og Vestursvæði 2017, repave – fræs og malbikun

28.3.2017

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurnýjun malbikaðra slitlaga með Repave aðferð eða sem fræsun og yfirlögn á Suðursvæði og Vestursvæði 2017.

Helstu magntölur:

-            Repave – Fræs og yfirlögn                                                73.080 m2

 Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, 105 Reykjavík (móttaka), Breiðumýri 2 á 800 Selfossi og Borgarbraut 66 í Borgarnesi frá og  með þriðjudeginum 28. mars 2017.  Verð útboðsgagna er 2.000 kr

 Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 11. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.