Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði, Hellisheiði - Selfoss 2018, malbik

20.5.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði 2018, Hellisheiði - Selfoss.

Helstu magntölur:

     -Útlögn malbiks                     127.500 m2

     -Hjólfarafylling                           2.700 m2

     -Fræsing                                     42.700 m2

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 23. maí 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 5. júní og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.