Yfirlagnir á Suðursvæði 2017, malbik
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði 2017.
Helstu magntölur:
- Útlögn malbiks 102.640 m2
- Hjólfarafylling 15.770 m2
- Fræsing 56.000 m2
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, 105 Reykjavík (móttaka) og Breiðumýri 2 á Selfossi frá og með þriðjudeginum 28. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr
Skila
skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 11. apríl og verða þau
opnuð þar kl 14:15 þann dag.