Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði 2017, klæðing

17.3.2017

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2017.

Helstu magntölur eru:

  • - Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar             318.583 m2          
  • - Flutningur steinefna                                                 4.142 m3

 Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og  með mánudeginum 20. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.