Auglýst útboð
Yfirlagnir á Norðursvæði 2019, klæðing
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Norðursvæði 2019
Helstu magntölur eru:
- - Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 350.789 m2
- - Yfirlögn með kílingu 10.535 m2
- - Flutningur steinefna 4.681 m3
- - Flutningur bindiefna 613 tonn
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 1. apríl 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.