Auglýst útboð

Yfirlagnir á Austursvæði 2021, malbik

30.5.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Austursvæði árið 2021.

Helstu magntölur:

Yfirlögn:                                  16.100 m2

Viðgerðir:                                  300 m2

Fræsing:                                 6.100 m2

Verki skal að fullu lokið 15. september 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 2. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.