Auglýst útboð

Yfirborðsmerkingar: Sprautuplöstun og vegmössun frá Hvalfjarðargöngum að Egilsstöðum 2020-2022 (EES útboð)

4.12.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingar akbrauta með vegmössun og sprautuplöstun frá Hvalfjarðargöngum að Egilsstöðum. Um er að ræða  merking akreinalína og stakra merkinga árin 2020 – 2022. 

Helstu magntölur, miðað við þrjú ár, eru:

Flutningur véla og  vinnuflokks 3.000 km.
Fjarlæging merkingar / fræsun 2400 m2
Vélmassaðar línur, 100 mm breiðar 148.500 m
Vélmassaðar línur, 200 mm breiðar 120.000 m
Handmössun (þver- og hornalínur) 13.500 m
Sprautuplastaðar miðlínur 2.976.000 m
Sprautuplastaðar deililínur 186.000 m
Sprautuplastað bannsvæði 66.000 m
Sprautuplastaðar kantlínur 1.080.000 m
Stakar merkingar 19.500 m2

Verki skal að fullu lokið 1. september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  2. desember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. janúar 2020. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um
nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.