Auglýst útboð

Vorsabæjarvegur (324) og Gnúpverjavegur (325)

21.4.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í útakstur styrktarlags, burðarlags og útlögn klæðingar á Vorsabæjarveg (nr. 324-01) og Gnúpverjaveg (nr. 325-01).

Helstu magntölur eru:

- Styrktarlag  0/90                                             4.090  m3

- Burðarlag 0/22                                                2.870  m3

- Tvöföld klæðing                                            21.930  m2

Verklok eru 1. september 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 20. apríl 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.