Auglýst útboð

Viðhald malarvega á Suðursvæði 2020 – 2021. Þjónustustöð í Hafnarfirði; vegheflun

9.3.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vegheflun á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Hafnarfirði.

Helstu magntölur á ári eru áætlaðar:
Vegheflun:  200 km

Verki skal að fullu lokið 31. desember 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  9. mars 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign