Auglýst útboð
Viðgerðir á malbikuðum slitlögum 2020-2022, Reykjanes
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á malbikuðum slitlögum á Reykjanesi árin 2020-2022.
Helstu magntölur eru:
Viðgerð með íkasti: Malbikssögun: Viðgerð með fræsun: | 850 m2 50 m 950 m2 |
Verkinu skal að fullu lokið 1. apríl 2022.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 14. febrúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.