Vetrarþjónusta 2021-2024, Höfuðborgarsvæðið (EES)
Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, á tilteknum leiðum á Höfuðborgarsvæðinu.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.
Heildarlengd vegakafla er 109,7 km.
Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 100.000 km. á ári.
Verklok eru í apríl 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudaginn 30. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.