Auglýst útboð

Vetrarþjónusta 2018-2021, Reykjanes - Bolungarvík

9.4.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:

  • Djúpvegur (61)                 Reykjanes – Bolungarvík, ásamt Hafnarvegi (636), Vestfjarðavegi í Tungudal (60)  og Skutulsfjarðarvegi (639).  Lengd vegarkafla er 155 km

Helstu magntölur eru:

  • Akstur mokstursbíla 43.000 km.  

Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2021.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á  Ísafirði  og Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 9. apríl  2018.  Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum til á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.