Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2018-2021, Raufarhafnarvegur - Bakkafjörður
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:
- Norðausturvegur(85) Raufarhafnarvegur - Hafnarvegur 86 km
- Hafnarvegur Bakkafirði(91) Norðausturvegur
– Bakkafjörður 4,5 km
- Langanesvegur(869) Norðausturvegur
– Flugvallarvegur 1,6 km
- Flugvallarvegur(871) Langanesvegur – Flugvöllur 0,5 km
Heildarlengd vegakafla er 93 km.
Helstu magntölur á ári eru:
- Akstur mokstursbíls 33.000 km
Verklok eru 30. apríl 2021.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með miðvikudeginum 11. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 25. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.