Auglýst útboð

Vetrarþjónusta 2018-2021, Dalasýsla

9.4.2018

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:

  • Vestfjarðavegur(60)                      Breiðabólsstaður - Djúpvegur í Geiradal, 74 km
  • Snæfellsnesvegur (54)                  Vestfjarðavegur -  Bíldhóll, 27 km.
  • Heydalsvegur (55)                         Bíldhóll – Snæfellsnesvegur, 26 km

Helstu magntölur eru:

  • Akstur mokstursbíla 20.000 km  

Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2021.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi  og Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka= frá og með mánudeginum 9. apríl  2018.  Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum kl. 14:00 þriðjudaginn 24. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.