Auglýst útboð

Vetrarþjónusta 2016-2019, Reykhólasveit

22.8.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2016-2019 á eftirtöldum leiðum:

  • Vestfjarðavegur (60):  Djúpvegur  – Fjarðarhornsá í Kollafirði 74 km
  • Reykhólasveitarvegur (607):  Vestfjarðavegur – Karlseyjarvegur 13 km
  • Karlseyjarvegur (606):  Reykhólasveitarvegur - Karlsey 3 km

Helstu magntölur á ári eru:

  • Akstur mokstursbíls  13.100 km

 Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2019.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi  og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 23. ágúst  2016.  Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. september 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.