Auglýst útboð

Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Þórisstaðir-Hallsteinsnes (EES)

16.2.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar í Þorskafirði á um 10,4 km kafla og um 0,2 km
kafla á Djúpadalsvegi. 
Helstu magntölur eru:
  • - Bergskering í vegstæði 262.000 m3
  • - Fyllingar úr skeringum 208.100 m3
  • - Fláafleygar úr skeringum 56.200 m3
  • - Grjótvörn 21.000 m3
  • - Ræsalögn 966 m
  • - Styrktarlag, efnisvinnsla 46.600 m3
  • - Styrktarlag, útlögn 43.200 m3
  • - Burðarlag, efnisvinnsla 14.700 m3
  • - Burðarlag, útlögn 18.300 m3
  • - Klæðing 78.800 m2
  • - Vegrið 2.840 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með miðvikudeginum 16. febrúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.