Vatnsnesvegur (711) um Tjarnará
Vegagerðin býður hér með út byggingu á 1,2 km löngum vegi og 60 m löngum steyptum stokk við Tjarnará á Vatnsnesi.
Helstu magntölur eru:
Vegur:
- Efnisvinnsla 1.800 m3
- Skeringar 42.000 m3
- Fyllingar og fláafleygar 43.100 m3
- Styrktarlag 7.800 m3
- Burðarlag 1.500 m3
- Tvöföld klæðing 7.620 m2
- Frágangur fláa 33.000 m2
Stokkur:
- steypa 307 m3
- mótafletir 1.550 m3
- járnbending 40.500 kg
- gröftur 520 m3
- rofvörn 520 m3
Byggingu stokks skal lokið 1. maí 2019 en verkinu öllu að fullu lokið 1. september 2019.
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri og í móttöku Vegagerðarinnar, Borgartúni 7, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 31. júlí, 2018.
Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. ágúst 2018 og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.