Auglýst útboð

Uppsetning vegriða á Austursvæði 2021

13.6.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  uppsetningu á vegriðum á austursvæði Vegagerðarinnar.

Helstu magntölur eru:

- Víravegrið (fláavegrið), efni og uppsetning:          2.450 m

- Bitavegrið, uppsetning:                                           1.565 m

Verkinu skal lokið 15. desember 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 14. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.