Auglýst útboð
Undirgöng í Grindavík
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð steyptra undirganga og stígtenginga við þau undir Grindavíkurveg (43-01, Víkurbraut) við Suðurhóp í Grindavík.
Helstu magntölur eru:
- - Steypa 130 m3
- - Mót 490 m2
- - Járn 21 tonn
- - Skeringar 2.650 m3
- - Fyllingar 750 m3
- - Burðarlag 380 m3
- - Styrktarlag 100 m3
- - Malbik 780 m2
- - Frágangur fláa 850 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2019.
Útboðsgögnin verða afhent í móttöku Vegagerðarinnar,
Borgartúni 7 í Reykjavík og Breiðumýri 2 á Selfossi frá og með þriðjudeginum 11. júní 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 26. júní 2019 og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.