Auglýst útboð

Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá, eftirlit og ráðgjöf (EES)

26.7.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með byggingu brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg (3312) og við Auðsholtsveg (340-01) og gerð reiðstígs. Nýja brúin verður verður til hliðar við núverandi brú, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m. 

 

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 26. júlí 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. ágúst 2021. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Þriðjudaginn 31. ágúst  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.