Þverárfjallsvegur (73) um Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá, hönnun
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í for- og verkhönnun Þverárfjallsvegar (73)
um Refasveit og
Skagastrandarvegar (74) um Laxá. Um er að ræða:
- Um 11,8 km stofn- og tengivegi (8,5 km á Þverárfjallsvegi og 3,3 km á Skagastrandarvegi).
- Tíu minni vegtengingar/heimreiðar, samtals um 4,5 km.
- Þrenn vegamót við stofn- og tengivegi
- Þrjú búfjárræsi
- Eftirlitsstaður til umferðareftirlits
Val bjóðanda fer
fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt
í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Forhönnun
skal lokið fyrir 10. janúar 2020 og verkhönnun skal lokið fyrir 15. maí 2020
Útboðsgögn
verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, 105 Reykjavík (móttaka), frá og
með mánudeginum 22. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. ágúst 2019, og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður haldinn að Borgartúni
7, 105 Reykjavík þriðjudaginn 27. ágúst 2019 kl. 14:15 þar sem birtar verða
einkunnir bjóðenda úr hæfnismati og verðtilboð opnuð