Auglýst útboð

Þórsmerkurvegur (249), Suðurlandsvegur - Gljúfurá

13.1.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Þórsmerkurvegar (nr. 249-01) frá gatnamótum Hringvegar að Gljúfurá. Verkið felst í gerð alveg nýs 8 m breiðs vegar, að megninu til á nýju vegarstæði, all nokkru vestar en þar sem núverandi vegur er. Vinna skal og leggja burðarlag (0/22 mm) og styrktarlag og leggja klæðingu á veginn, ásamt efnisvinnslu.

 Helstu magntölur eru:

- Fyllingar                                                       15.105 m3

- Styrktarlag                                                    6.070  m3

- Burðarlag 0/22                                              2.405  m3

- Tvöföld klæðing                                           9.900  m2

- Frágangur fláa                                             13.845  m2

Verklok eru 1. júlí 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  13. janúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. janúar 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.