Auglýst útboð

Þorlákshafnarvegur (38) Þrengslavegur - Eyrarbakkavegur

24.5.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurmótun á hluta Þorlákshafnarvegar (38-02/03) og lagfæringar gatnamótanna við Eyrarbakkaveg ásamt gerð áningarstaðar, alls um 3,3 km.

Helstu magntölur eru:

- Skeringar    4.760  m3

- Fláafleygar 2.110  m3

- Styrktarlag 0/63     3.255  m3

- Burðarlag 0/22       4.825  m3

- Malbik 60 mm        27.315 m2

- Frágangur fláa       31.170 m2

- Fræsing      23.600 m2

- Hellulögn    28 m2

- Umferðarmerki 12 stk.

- Málun          8.465  m

Verklok eru 15. september 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 25. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.