Auglýst útboð

Suðureyrarhöfn, endurbygging Vesturkants 2019

18.11.2019

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í endurbyggingu Vesturkants á Suðureyri.

Útboðið nefnist: Suðureyrarhöfn, endurbygging Vesturkants 2019

Helstu magntölur:

  • ·         Reka niður 36 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ14-770 10/10 og ganga frá stagbitum og stögum.
  • ·         Steypa 18 akkerisplötur.
  • ·         Steypa um 54,5m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
  • ·         Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 620 m³ og ofan á svæði undir þekju.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  18. nóvember 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudeginum 3. desember 2019.  

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.