Auglýst útboð
Snæfellsnesvegur (54): Blönduhlíð - Ketilsstaðir
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í 1,7 km kafla Snæfellsnesvegar frá Blönduhlíð að Ketilsstöðum ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 8.500 m3
- Fyllingar og fláafleygar 21.850 m3
- Styrktarlag 6.080 m3
- Burðarlag 2.222 m3
- Tvöföld klæðing 14.790 m2
- Frágangur fláa 35.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2020.
Útboðsgögn verða afhent á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. maí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 12. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.