Auglýst útboð

Siglufjörður – Bæjarbryggja, þekja

5.2.2017

Hafnarsjóður Fjallabyggðar óskar eftir tilboð í ofangreint verk.

 Helstu verkþættir eru:

  • ·           Jafna yfirborð undir þekju og malbik, 7.200 m2
  • ·           Leggja frárennslislagnir, um 200 m.
  • ·           Steypa þekju, um 3.600 m2
  • ·           Malbikun, um 3.600 m2

Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. ágúst 2017.

 Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði, frá og með þriðjudeginum 7. febrúar 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

 Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.