Auglýst útboð

Sauðárkrókur – upptekt þvergarðs og lenging Norðurgarðs 2021

28.7.2021

Skagafjarðarhafnir óska eftir tilboðum í að lengja  Norðurgarð Sauðárkrókshafnar um 30 metra og taka upp þvergarð innan við garðinn og nota efni úr honum í grjótvörn og kjarnafyllingu lengingarinnar.

Helstu magntölur:

·         Útlögn á grjóti úr námu, um 3.700 m3

·         Upptekt, endurröðun og losun efnis á losunarsvæði, um 10.000 m3

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. mars 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 28. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. ágúst 2021. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.