Auglýst útboð

Sauðárkrókur, sjóvörn og sandfangari 2020

5.7.2020

Skagafjarðarhafnir og Vegagerðin óska eftir tilboðum í gerð sjóvarnar meðfram Þverárfjallsvegi og Skarðseyri á um 450 m kafla og lengingu Sandfangara um 30 m.

Helstu magntölur:

·         Útlögn á grjóti og kjarna úr námu, um 13.600 m3

·         Upptekt og endurröðun 1.300 m3

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 31. desember 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 6. júlí  2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.