Auglýst útboð

Rifshöfn, endurbygging Norðurkants 2016

29.7.2016

Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboð í ofangreint verk.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

·           Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi Norðurkanti

·           Jarðvinna, uppúrtekt og þjöppun

·           Reka niður 135 stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum

·           Steypa um 207 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2017.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á hafnarskrifstofu Snæfellsbæjar, Norðurtanga 5 í Ólafsvík,  frá og með þriðjudeginum 2. ágúst 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16.ágúst 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.