Reykjavegur (355), Biskupstungnabraut – Laugarvatnsvegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breikkun og endurgerð Reykjavegar (355) í Bláskógarbyggð ásamt byggingu nýrrar 20 m langrar eftirspenntrar brúar yfir Fullsæl. Lengd kaflans auk tengivega er 8 km. Innifalið í verkinu er einnig efnisvinnsla í námum, ræsalögn, girðingarvinna og útlögn klæðingar.
Helstu magntölur í vegagerð eru:
- - Skeringar 145.000 m3
- Þar af bergskeringar 63.400 m3
- - Fyllingar 57.400 m3
- - Fláafleygar 21.000 m3
- - Lenging og endurlögn ræsa 443 m
- - Styrktarlag 40.300 m3
- - Burðarlag 24.600 m3
- - Tvöföld klæðing 68.000 m2
Helstu magntölur í brúargerð eru:
- - Steypustyrktarjárn 62.330 kg
- - Mótafletir 1.183 m2
- - Steypa 555 m3
- - Kaplar 12 x 16 mm 4.090 kg
Áfanga 1 í verkinu (3,5 km fullgerður vegur ) skal ljúka fyrir 1. september 2019. Verkinu skal vera að fullu lokið 1. september 2020.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá mánudeginum 10. desember 2018. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 08. janúar 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.