Auglýst útboð

Patreksfjörður, styrking grjótvarnar við Oddann 2016

5.9.2016

Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.

Helstu magntölur:

  • Útlögn grjóts og kjarna úr námu um 4.280 m³
  • Útlögn grjóts sem lagerað er á staðnum um 200 m³

Verkinu skal lokið eigi síðar en 20. desember 2016.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 6. september 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. september 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.