Auglýst útboð

Ólafsvík – Endurbygging Norðurtanga 2021

13.2.2021

Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Norðurtanga í Ólafsvík.

Helstu verkþættir eru:

·         Brjóta og fjarlæga kant, polla og þekju á núverandi bryggju.

·         Jarðvinna, uppúrtekt, fylling og þjöppun.

·         Þilskurður fyrir stálþilsrekstur um 128m.

·         Reka niður 94 tvöfaldar stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.

·         Steypa um 130 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 31. október 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 15. febrúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 2. mars 2021.

Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.