Auglýst útboð
Hvítársíðuvegur (523-03): Kalmanstunga – Hvítá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á um 2,8 km kafla Hvítársíðuvegi (523-03): Kalmanstunga - Hvítá
Helstu magntölur eru:
- Styrktarlag 7.270 m3
- Burðarlag 3.150 m3
- Tvöföld klæðing 18.600 m2
- Frágangur fláa 17.100 m2
Verkinu
skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2021
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.