Auglýst útboð

Suðureyri – Vesturgarður, þekja 2020

5.7.2020

Ísafjarðarhöfn óskar eftir tilboðum í steypta þekju á Suðureyri.

Helstu magntölur:

  • Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju.
  • Slá upp mótum, járnabinda og steypa þekju, alls um 808 m2.
  • Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn, alls um 211 m.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 6. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.