Bíldudalsvegur (63) um Botnsá í Tálknafirði
Vegagerðin býður hér með út nýjan vegarkafla á Bíldudalsvegi (63) um Botnsá í Tálknafirði, auk styrkingar á um 1 km löngum kafla vegarins og gerð nýrrar brúar á Botnsá. Ný brú yfir Botnsá verður eftirspennt plötubrú í einu hafi, 20 m löng, heildarlengd 22,4 m. Brúin er grunduð í lausu efni á steyptum staurum.
Vegagerð, helstu magntölur eru:
- - Fyllingar 28.000 m3
- - Ræsalögn 228 m
- - Endafrágangur ræsa 24 stk.
- - Styrktarlag 8.500 m3
- - Burðarlag 3.150 m3
- - Tvöföld klæðing 12.432 m2
- - Bitavegrið, uppsetning 370 m
- - Rofvörnin - 1200 m3
- Brú, helstu magntölur eru:
- - Gröftur 110 m3
- - Steyptir staurar, skurður 52 stk.
- - Mótafletir 783 m2
- - Steypustyrktarjárn 41 tonn
- - Spennt járnalögn 7 tonn
- - Steypa 420 m3
- - Vegrið á brú 74 m
- Verkinu skal að fullu lokið 14. júlí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 22. júní 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. júlí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.