Auglýst útboð

Þórshöfn – dýpkun 2020

10.5.2020

Hafnarstjórn Langaneshafna óskar eftir tilboðum í dýpkun á Þórshöfn.  

Helstu magntölur:

  •     Heildar flatarmál dýpkunarsvæða er um 27.000 m² og  
  •     rúmmál dýpkunarefna er um 20.000 m³.

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. desember  2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 11 maí  2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.