Biskupstungnabraut (35) ofan Borgar
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breikkun og malbikun á Biskupstungnabraut (35) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Kaflinn er um 2,4 km langur frá hringtorginu í Borg og að kafla sem verið er að breikka og styrkja.
Helstu
magntölur eru:
- - Fylling 1.430 m3
- - Fláafleygar úr skeringum 7.880 m3
- - Styrktarlag 0/63 690 m3
- - Burðarlag 0/22 410 m3
- - Malbik 60 mm 18.630 m2
- - Frágangur fláa 15.030 m2
Verkinu
skal að fullu lokið 1. september 2020
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 4. maí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.