Auglýst útboð

Þverárfjallsvegur (73) um Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá, hönnun

21.7.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í for- og verkhönnun Þverárfjallsvegar (73) um Refasveit og
Skagastrandarvegar (74) um Laxá. Um er að ræða:

  •    Um 11,8 km stofn- og tengivegi (8,5 km á Þverárfjallsvegi og 3,3 km á Skagastrandarvegi).
  •    Tíu minni vegtengingar/heimreiðar, samtals um 4,5 km.
  •    Þrenn vegamót við stofn- og tengivegi
  •    Þrjú búfjárræsi
  •    Eftirlitsstaður til umferðareftirlits

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Forhönnun skal lokið fyrir 10. janúar 2020 og verkhönnun skal lokið fyrir 15. maí 2020

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, 105 Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 22. júlí 2019.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. ágúst 2019, og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður haldinn að Borgartúni 7, 105 Reykjavík þriðjudaginn 27. ágúst 2019 kl. 14:15 þar sem birtar verða einkunnir bjóðenda úr hæfnismati og verðtilboð opnuð