Hringvegur (1) - Sementsfestun í Berufirði
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í að þurrfræsa og sementsfesta á um 2,64 km á Hringveginum í Djúpavogshreppi, kaflinn byrjar innan við Skála að slitlagsenda í botni Berufjarðar.
Helstu magntölur eru:
- Burðarlag 0/22 650 m3
- Sementsfestun 19.368 m2
- Klæðing 19.368 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2019.
Útboðsgögnin verða afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 1. júlí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þriðjudaginn 16. júlí 2019 og og verða þau opnuð þar kl.
14:15 sama dag.